Klukk
4.9.2008 | 22:30
Ja hérna! Haldiði ekki að ég hafi bara verið klukkuð. Ég átti nú satt að segja ekki von á því en Jóhanna bloggvinkona mín kom á mig höggi og ég vík mér að sjálfsögðu ekki undan því.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Á Borgarbókasafninu
- Skúringar í Ísbirninum
- Dagmamma
- Leikskóli, leikskóli, leikskóli... hef starfað við sjö leikskóla um ævina.
Fjórar eða öllu heldur fimm bíómyndir sem ég held upp á:
- Notebook
- Sixth Sense
- Pretty Woman
- Pride and Prejudice
- og að sjálfsögðu Kórinn.
Fjórir (fimm) staðir sem ég hef búið á allir í Reykjavík:
- Í Sólheimunum
- Á Brúnavegi
- Í Fossvogi á tveimur stöðum
- Í Hlíðunum
- Í Grafarvoginum
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Út og suður
- Greys Anatomy
- C.S.I
- Frelsisþrá (Tropiques amers) sem nú er á sunnudagskvöldum á RÚV
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Kanarí
- Kúba
- Kína
- Grikkland
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
- Innri vefur Léttsveitarinnar
- Mbl.is
- Vedur.is
Fernt sem ég held upp á matarkyns:
- Heimabakaða laugardagspizzan að hætti heimavarnarliðsins
- Heimabökuðu, grilluðu, pítubrauðin mín full af fersku grænmeti og djúsí pítusósu.
- Kókoskjúllinn hans Sveins borinn fram með ferskum banönum og gúrkusneiðum
- Eggjakaka að hætti Jóhönnu Vigdísar.
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft les reyndar helst ekki sömu bókina oft en
- Sjálfstætt fólk
- Austan vindar og vestan og fl. bækur eftir Pearl S. Buck
- Sigga Vigga og börnin í bænum - Bók sem hafði varanleg áhrif á uppeldislega sýn mína strax þegar ég var barn að aldri.
- Ýmsar barnabækur sem ég nánast kann utanað eftir rúmlega 20 ár sem leikskólakennari
Fjórir bloggara sem ég klukka úbbs verða það nokkuð að vera moggabloggarar - ég held að ég eigi ekki marga lesendur í þeim hópi. Prófum þessar fimm og sjáum hvað setur:
Athugasemdir
það er bannað að klukka konur eins og mig - sem aldrei man neitt af því sem spurt er um. Sjáum til hvað ég geri, verð að viðurkenna að ég kann ekki þennan leik.
Kristín Dýrfjörð, 5.9.2008 kl. 22:17
Æ, Kristín mín fyrirgefðu, ég skil þig alveg en fullvissa þig um að það er ýmislegt sem rifjast upp þegar á reynir
Annars veit ég eiginlega ekki alveg hvað þetta er með mig - ég veit fátt verra en að fá svona keðjusendingar (flokka þetta sem eina slíka) en einhverra hluta vegna læt ég þær oftast ganga áfram - ég held að þetta tengist því að í eðli mínu er ég afar hlýðin manneskja og reyni yfirleitt að gera það sem mér er sagt eða ég er beðin um.
Ingibjörg Margrét , 7.9.2008 kl. 15:16
Ég skal leggja höfuð í bleyti ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 7.9.2008 kl. 22:02
Langaði bara að kvitta í bókina .. ég kíkti hérna inn kl 13:03 þann 10. September 2008.. :)
G. Reykjalín, 10.9.2008 kl. 13:04
Og aftur þann 11 September kl 9:39 .. magnað ekki satt?
G. Reykjalín, 11.9.2008 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.