Hlýrra en allt sem hlýtt er

Ég átti erindi í Reynisholtið mitt í gær vegna undirbúnings námskeiðs sem fyrirhugað er að við Sigurlaug höldum ásamt Helenu í Náttúruskólanum fyrir starfsfólk Grænfánaleikskóla hjá Borginni.

Ég gekk auðvitað inn á deildir og fékk afar ljúfar móttökur frá ungum (og eldri reyndar líka) vinum mínu.

Ein 5 ára vinkona mín stökk á fætur, faðmaði mig og sagði: "HVAR VARSTU?"

Ég strauk henni um vangann og svaraði: "Ég var í hinni vinnunni minni, nýju vinnunni minni... (mér mætti augnarráð sem sagð - Og hvað?) Ég: ...en ég kem í heimsókn!"

Hún: "Ohhh, ég elska þig svooo mikið!"  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið var þetta sætt. Þau eru svo dásamlega þessi börn og segja auðvitað bara það sem þeim finnst.

Mikið rosalega ertu annars búin að vera duglega að blogga. Dásamlegt !

Sjáumst vonandi fljótlega

Beta

Beta (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 13:01

2 Smámynd: Ingibjörg Margrét

Jamm, svona athugsemdir ylja manni af því að börn eru svo einlæg og falslaus.

Varðandi bloggdugnað þá er svo gott að henda inn nokkrum blogglínum inn á milli lína í skýrslugerð

Ingibjörg Margrét , 13.8.2008 kl. 13:33

3 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Eins og við vitum þá slær leikskólakennarahjartað inn á deildum, þar er næringin.

Kristín Dýrfjörð, 13.8.2008 kl. 17:39

4 identicon

...og fórstu ekki bara að gráta?  Aldeils ljúft að eiga svona skilaboð í hjartaholunni.  Já, hef aldeils tekið eftir bláu skellunum á mínum stóra palli upp í sumó! Haustið nálgast með sinni litadýrð

Birna (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband