Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Afmælisbörnin mín

Eftir pirringsfærsluna hér að neðan er auðvitað upplagt að lyfta geðinu á hærra plan með góðum óskum til afmælisbarnanna minn Smile.

Svo skemmtilega vill nefnilega til að þau Snorri miðlungurinn minn og Katrín mín dásamlega tengdadóttir eiga sama afmælisdag. Hann er 19 ára í dag og hún 22.  

Til hamingju með daginn krakkar mínir!

Dagurinn hefur auðvitað einkennst af afmælisstússi. Við gömlu hjónin vorum komin fram upp úr kl 6 í morgun, til að hita brauð í ofni og baka vöfflur svo afmælisbörnin - og við hin líka - gætum notið lúxus morgunverðar áður en við mættum til vinnu kl. 8. Nú Snorri hafði svo pantað heimagert Lasagne og auðvitað var orðið við því í kvöldverðinum.

Núna bíða þau skötuhjú (og auðvitað Gunnar líka) eftir því að húsið fyllist af vinum og kunningjum sem hér ætla að gera sér glaðan dag/kvöld. Við Nenni minn erum þess vegna skriðin í okkar litla notalega verelsi til að eyða kvöldinu yfir imbanum. Nú og svo leggst maður bara á sitt græna, heyrandi eyra og snýr því heyrnarlausa upp og sefur af sér alla partýgleðina - já, ljósin mín, fátt er svo með öllu illt Wink.

Þess má að lokum geta, fyrir ykkur sem eruð kunnug okkar heimilisháttum, að við gamla settið skiptum um síðustu helgi um herbergi við unga parið. Ég hafði hugsað það í nokkurn tíma að það væri mikið nær að við kúldruðumst í þessum átta fermetrum og eftirlétum þeim svefnherbergið til að hreiðra um sig í. Og það get ég sagt ykkur að mér finnst þetta bara voða notalegt. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband